26.2.2025 | 06:27
Tónlistin, útvörpin, bluetooth hátalarar og hávaðinn.
Hætta alveg að velja lög sjálfur til að hlusta á, ef ég vel lögin sjálfur þá hlusta ég á sömu lögin aftur og aftur en í staðin fyrir það þá set ég á útvarpstöð svo mun ég aldrei byrja að syngja þá.
Aldrei hafa kveikt á útvarpinu á nóttinni þegar ég er sofandi og sérstaklega ekki hátt stillt en ég gleymi oft að slökkva ef ég hef drukkið áfengi.
Venja mig alveg af því að fara á Youtube, spila útvarpið í græjunum lágt stillt ef ég er að hlusta.
Nú er ég orðinn fullsaddur af því að velja eitt lag í einu að handahófi og er ákveðin í að hlusta alfarið minna á tónlist nema þá á útvarpið.
Hafa sem reglu að fara ekkert inná Youtube til að hlusta á einhver lög sem ég vel því ég man svo lágt hlutfall af þægilegri tónlist til að spila.
Á Rás 2 er mikið spiluð ný tónlist, ágætt er að spila það útvarp á laptop oft á tíðum.
Ég þyrfti að eyða tímanum heima án þess að hlusta á tónlist því ég hef fengið leið á flestri tónlist með að vera hlusta á það sama lengi.
Ég er ekkert að njóta þess að velja tónlist sjálfur, ég ætti ekki að hlusta svona oft á sömu lögin, þægilegast er að vera edrú með útvarpstöð lágt stillt og þurfa ekkert meira frá tónlistinni en það.
Aldrei hringja í útvarpið, mér finnst það bara stressandi og sé alltaf eftir því svo lengi eftirá.
Venja mig af því að syngja með tónlist og muna að ekki hafa þannig hávaða því fólk heyrir slíkt.
Ekkert vera með heyrnatól til að hlusta á tónlist heima með því ég vil frekar heyra í umhverfinu.
Hafa útvarpið lágt stillt því þá nýt ég þess eitthvað yfirhöfuð að hlusta á tónlist og alls ekki vera að velja lögin sjálfur því þannig líkar mér ekki að hlusta á tónlist einhverra hluta vegna.
Íslenskar útvarpsstöðvar má finna á vísir.is og spilarinn.is svo er drum and bass á radio.net, dnbradio.com en radio fly foot selecta og real Roots radio heimasíðan eru með reggae tónlist.
Hætta alveg að fara á SoundCloud, Spotify og nota þá jango.com í staðinn til að hlusta á tónlist.
Alls ekki syngja með tónlist þegar ég að hlusta því eftirá finnst mér það ömurlegt alltaf hreint.
Alls ekki nota Bose hátalarann því ég á ekki að spila tónlist hátt því allt hverfið heyrir þá, svo held ég að ég fái leið á tónlist ef hún er of há.
Hætta að setja alltaf bluetooth hátalara í gang og hlusta á útvarpið lágt stillt frekar í Sony græjunum því annars er tónlistin of hátt stillt fyrir köttinn.
Hætta að vera með bluetooth hátalara í laptop eða snjallsíma þegar það er fólk útí brekku á veturna því það er svo hallærislegt fyrir fólkið.
Hætta helst að nota bluetooth hátalara nema það sé fólk í heimsókn svo ég venji mig af því að vera að hlusta á tónlist hátt því kisi býður við því.
Hætta alveg að spila tónlist hátt með bluetooth útaf kisa og tónlist á að veita gleði en oft á tíðum veldur hávaðinn óþægindum öllu heldur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning