14.6.2025 | 10:45
Ritgerð um íþróttir á Íslandi eftir Milliliðir
Inngangur
Í þessari ritgerð er fjallað um hvaða íþróttir eru vinsælastar á Íslandi um þessar mundir. Sumar af þeim íþróttum sem ég nefni eru ekki endilega íþróttir sem ég myndi sjálfur hafa gaman af en ég er einmitt þannig staddur í lífinu að ég þarf að finna mér einhverja íþrótt til að stunda og hafa gaman af. En í bili þá fer ég bara í göngutúra og ætla að byrja að stunda sund og synda sem líkamsrækt. Lykillinn að heilbrigðu líferni er að stunda einhverja hreyfingu í góðra vina hópi og því meira sem fólk gerir af því þá verður samfélagið betra samfélag með fleiri efnilega íþróttamenn fyrir vikið.
Meginmál
Það er líklegast að flest fólk sem byrjar í íþróttum er að stefna á atvinnumennskuna. Fólki finnst gaman að fá borgað fyrir eitthvað sem því finnst skemmtilegt að gera og á Íslandi stækka atvinnumöguleikarnir í hinum og þessum íþróttum jafnóðum. Á Íslandi er ekki næstum því hægt að stunda nærrum þvi allar íþróttir og með tímanum eru alltaf að bætast við nýjar íþróttagreinar eins og til dæmis bogfimin sem hefur slegið í gegn nýlega. Íþróttariðnaðurinn á Íslandi fer semsagt stækkandi með árunum en vinsældir sumra íþróttagreina aukast á meðan aðrar íþróttagreinar tapa vinsældum sínum.
Á Íslandi fer atvinnumennska í íþróttum vaxandi, algengastu íþróttirnar er knattspyrna og handbolti. Flest atvinnuíþróttafólk tilheyrir ákveðnu íþróttafélagi, fólkið er oft í miklum samskiptum við starfsstéttir á borð við lækna, sjúkraþjálfara, nuddara og næringarráðgjafa.
Íþróttagreinin dans er einnig mjög vinsæl, það er íþrótt sem allir geta stundað sama hversu gamall einstaklingurinn er og það ætti hver sem er að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á því sviði. Til dæmis í dansi þá sinna danskennarar danskennslu í dansskólum, líkamsræktarstöðvum, jafnvel á námskeiðum. Starfið felst að miklu leyti í að kenna, æfa einstök spor, hreyfingar og tengja þau saman í einhvern dans.
Samkvæmisdanskennarar sérhæfa sig oft í dönsum á borð við suðurameríska dansa, þjóðdansa eða þá sem eru í tísku hverju sinni. Listdanskennarar kenna sígildan listdans og nútímalistdans en jassballettkennarar byggja kennsluna á listdansi í bland við aðrar danstegundir þar sem áhersla er lögð á frjálsan spuna.
Flestar íþróttir hafa góð áhrif á heilsuna og sérstaklega er það gott fyrir eldra fólk að stunda einhverja hreyfingu. Að vísu hættir fólk að æfa íþróttir á vissum tímaskeiðum ævinnar en heldur sér þó góðu í formi með að stunda sundlaugar og líkamsræktarstöðvar. Best að stunda íþróttir til að halda sér í góðu formi og það að fólk fari reglulega á æfingar eða í líkamsækt er stórt skref fram á við til að lifa í heilbrigðara samfélagi almennt. Hver og einn ber náttúrulega mesta ábyrgð að eigin heilsufari, koma þarf einhvernveginn í veg fyrir óheilbrigt líferni ásamt miklu hreyfingarleysi í alla staði.
Fótbolti á Íslandi er stöðugt að bæta við sig vinsældum og sérstaklega núna þegar Ísland var á leiðinni í heimsmeistarakeppnina í Rússlandi sumarið 2018. Það má segja að fótbolti sé vinsæasta íþróttin á Íslandi um þessar mundir. Það eru ábyggilega margt fólk sem lætur sér dreyma um að Ísland vinni eitthvað af leikjum í keppnini og sagt er að þjóðirnar sem taka þátt í þessari keppni stefni öll auðvitað á sigur, hvað annað? Þannig að um þessar mundir er gríðalegt fótboltaæði á Íslandi, það mun hafa þær afleiðingar að minna á eftir að bera á öðrum íþróttum eins og handbolta og körfubolta á meðan slíkt æði er yfirvoðandi. Jaðaríþróttirnar hjólabretti og snjóbretti eru að aukast stöðugt á Íslandi, ekki er langt síðan fyrsta hjólabrettafyrirtækið var stofnað á Íslandi sem selur einungis brettaplötur þó. Af og til er verið að halda snjóbrettakeppnir á Íslandi en þó eiginlega bara um veturna þegar það er snjór í fjöllunum. Brimbretti er einnig íþrótt sem fer vaxandi á Íslandi og það er vel hægt að stunda brimbrettin við Íslenskar aðstæður en sjórinn er kaldur og kannski eru strendurnar með of miklu gróti og klettum sem er þá alltaf mikil slysahætta af. Það eru til manneskjur hér á landi sem stunda það að klæða sig í sjógalla og fara út á land að finna strendur þar sem er öldugangur svo hægt sé að fara á brimbretti.
Á þeim tíu árum sem brimbrettaíþróttin hefur verið stunduð hér hefur tímabilið lengst fram á vetur en þá útheimtir það betri búnað. Ekki má heldur gleyma því að það tekur langan tíma að verða góður á brimbretti. Þetta er mjög háð aðstæðum og menn þurfa að hafa vit á því að fara ekki út í hvað sem er. Einnig þurfa menn að vera góðir sundmenn.
Þá er ég hér með, í þessari ritgerð, búinn að nefna nokkrar íþróttir sem ég tel vera vinsælustu íþróttirnar á Íslandi um þessar mundir. Eins og sagt er í heilbrigðiskerfinu þá er engin heilsa án góðrar geðheilsu, en það má ekki gleyma að lykillinn að góðri geðheilsu er regluleg hreyfing, hollt mataræði og góður svefn. Til að vera góður íþróttamaður þarf maður að halda sér í æfingu, best er fyrir íþróttafólk að velja sér íþrótt sem er lítið um meiðsli eða hreinlega aldrei gleyma því að fara alltaf varlega þegar maður stundar einhverja íþrótt, það þarf að teygja alltaf fyrir og eftir hverja æfingu svo að hægt sé að stunda íþróttir reglulega.
Lokaorð
Mér finnst að það sem ég var að fjalla um í þessari ritgerð sé áhugavert viðfangsefni og svolítið erfitt að koma því saman í eina ritgerð en með hjáp tölvunnar og internetsins gekk það vel. Ég fann nokkrar áhugaverðar heimildir sem ég studdi mig við í ritgerðinni. Í stuttu máli er ég að útskýra í ritgerðinni um vinsælustu íþróttagreinarnar, atvinnumennsku og hvaða kostir séu við að finna sér einhverja íþrótt til að stunda til þess að lifa hamingjusamlegu lífi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning